Persónuvernd
Persónuverndarstefna
I. Almennt
Allir eiga rétt til verndar eigin persónuupplýsingum og að þær séu ekki almannaeign. Procura er umhugað um þínar persónuupplýsingar og hefur Procura sett sér þessa persónuverndarstefnu svo
tryggt sé, að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög.
Markmið Procura, hér eftir ..Procura" eða „félagið" með setningu persónuverndarstefnu er að þú og aðrir viðsemjendur félagsins, hvort sem það eru starfsmenn, viðskiptavinir eða aðrir
einstaklingar, eins og við á hverju sinni, hér eftir sameiginlega nefndir í þriðju persónu sem viðskiptavinir", eða í annarri persónu sem þú", séu upplýstir um hvernig félagið vinnur og safnar
persónuupplýsingum.
Persónuverndarstefna okkar tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir persónuvernd í skilningi laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, hvort sem
þeim er safnað og þær varðveittar á rafrænu formi, á pappír eða með öðrum varanlegum hætti.
II. Persónuverndarlöggjöf
Um meðferð persónuupplýsinga gildalög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsingaeins og þau eru á hverjum tíma, sem og viðkomandi hlutar reglugerðar (ESB) 2016/679 um
vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga.
III. Ábyrgð og tengiliðir
Procura ber almennt ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi sinni og er svokallaður ábyrgðaraðili vinnslu í skilningi persónuverndarlöggjafar en kann þó í
einhverjum tilvikum að vera vinnsluaðili upplýsinganna.
IV. Söfnun og notkun
Procura kann að safna persónupplýsingum um viðskiptavini í þeim tilgangi:
- Að veita aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga
- Að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum
- Að miðla upplýsingum í markaðslegum tilgangi
- Að sinna lögvörðum hagsmunum félagsins.
Procura safnar aðeins upplýsingum um viðskiptavini sem félaginu er lögum samkvæmt skylt að afla og varðveita eða ef vinnsla og söfnun er samkvæmt samningum aðila eða vegna annarra
lögmætra hagsmuna félagsins, eða samþykkis hins skráða. Þannig safnar Procura aðeins upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita ráðgjöf eða þjónustu hverju sinni. Kjósir þú að veita ekki
persónuupplýsingar er möguleiki á að Procura geti ekki útvegað þér umbeðnar vörur eða veitt þá þjónustu sem óskað er eftir.
Þegar þú skoðar og notar vefsvæði Procura safnar félagið gögnum sem vafri þinn sendir í þeim tilgangi að bæta notendaupplifun og auka öryggi, þ.e. gögn sem geta falið í sér upplýsingar eins og
IP-tölu, tegund vafra, útgáfu vafra, síður þjónustunnar, tíma og dagsetningu heimsóknar og önnur talnagögn.
Procura notar vefkökur til þess að aðgreina þig frá öðrum notendum á vefsíðu félagsins. Vefkökur eru litlar textaskrár sem vafrinn þinn vistar á tölvunni þinni sé hann stilltur til að samþykkja
notkun á vefkökum. Vefkökurnar gera Procura kleift að muna ákveðnar stillingar hjá þér til að bæta notenda upplifun og afla tölfræðiupplýsinga um notkun á vefsíðunni.
Þú getur ákveðið hvort þú heimilar sumar eða allar vefkökur með stillingum í netvafra. Ef þú kýst að leyfa ekki vefkökur þá kann hluti vefsíðunnar að verða óaðgengilegur eða aðgengilegur með
takmarkaðri virkni.
Nánar er fjallað um vefkökur og meðferð notandaupplýsinga í sér kafla um notkunarskilmála vefsíðu.
V. Miðlun
Procura nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þeirra var aflað. Félagið geymir aldrei persónuupplýsingar lengur en nauðsynlegt þykir í samræmi við ákvæði
viðskiptasamninga eða sem leiðir af lögum.
Procura miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki eða í samræmi við ákvæði laga og viðskiptasamninga. Procura er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja
aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi eða verktaki á vegum félagsins og þá í þeim tilgangi að ljúka við verkefni eða veita þjónustu eða vöru sem viðskiptavinur hefur gert samkomulag um.
Procura afhendir vinnsluaðilum einungis þær persónuupplýsingar sem þykja nauðsynlegar til að ná framangreindum tilgangi.
Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili (vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggir Procura trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu lokinni. Procura leigir aldrei eða selur
persónuupplýsingar viðskiptavina.
VI. Verndun
Procura leggur áherslu á að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta. Procura tryggir einnig að viðeigandi tæknilegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi
gagna hverju sinni. Procura mun tilkynna án tafar ef upp kemur öryggisbrot er varðar persónuupplýsingarnar og hefur í för með sér áhættu fyrir hlutaðeigandi. Með öryggisbroti í framangreindum
skilningi er átt við brot á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga, að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.
Vakin er sérstök athygli á, að þú berð ábyrgð á þeim persónuupplýsingum, t.d. nafni, kennitölu og myndum, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi t.d. með því að senda myndir eða
aðrar skrár inn á vefsíðu félagsins, eða í gegnum Facebook- eða Instagram síður þess.
VII. Varðveisla
Bókhaldsgögn Procura eru geymd í samræmi við lög og reglur um færslu bókhalds og varðveislu þess. Að þeim tíma liðnum er gögnunum eytt. Upplýsingum á skilagreinum er þó ekki eytt.
Procura reynir eftir fremsta megni að halda persónuupplýsingum um viðskiptavini nákvæmum og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum. Procura varðveitir persónuupplýsingar um tengiliði
þangað til að ósk berst um annað, og svo lengi sem það er nauðsynlegt til að uppfylla lagaskyldu.
VIII. Réttindi þín
Þú átt rétt á og getur hvenær sem er óskað eftir upplýsingum sem Procura geymir og varða þig, með því að senda skriflega fyrirspurn á [email protected]. Er beiðnin þá tekin fyrir og ef það á við
eru þér afhentar umbeðnar upplýsingarnar innan hæfilegs tíma. Athygli er vakin á að afhending er alltaf háð þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra setja, þ.m.t. persónuvernd þriðja
aðila, viðskiptaleyndarmál og hugverkaréttindi.
Þér verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verða við beiðni um afhendingu, eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Þú átt ávallt rétt á því að leggja fram
kvörtun til Persónuverndar komi upp ágreiningur um meðferð persónuupplýsinga.
IX. Breytingar
Persónuverndarstefna þessi er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum án fyrirvara og er þér ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar öðlast gildi
með birtingu á heimasíðu félagsins; www.procura.is
Svo yfirfarið og staðfest þann 26. febrúar 2023